Í beinni
Flokkar
Þættir

Addi

Addi á X977 og besta rokkið

Akraborgin

Akraborgin var þáttur um íþróttir í umsjón Hjartar Hjartarsonar á X977 á árunum 2015-2018.

Albumm.is

Albumm.is var þáttur um íslenska tónlist á X977 á árunum 2015-2016.

Algjört möst - 90s þátturinn

Bestu nostalgíurnar. Upptökur af 90s þættinum Algjört möst á Bylgjunni frá 2013-2015.

Aðeins meira en bara GYM

Hlaðvarpsþáttur í stjórn Birnu Maríu Másdóttur þar sem hún fær til sín góða gesti til að tala um íþróttir, heilsuna, mataræði eða bara eitthvað aðeins meira en bara GYM. Þættirnir eru frumfluttir vikulega á Útvarp 101 í síðdegisþættinum Tala saman.

Á mannauðsmáli

Unnur Helgadóttir fjallar um mannauðsmál í víðu samhengi. Rætt er við mannauðsstjóra, ráðgjafa og aðra sérfræðinga á sviði mannauðsmála þar sem farið er yfir feril viðmælenda og þau verkefni sem verið er að vinna að hverju sinni.

Áhöfnin á Fiskabúrinu

Tommi Steindórs og Doddi skipa Áhöfnina á Fiskabúrinu sem heldur á miðin alla fimmtudagsmorgna klukkan 9 á fullu stími. Aldrei bræla, alltaf mok.

Bakaríið

Ása Ninna og Svavar Örn sjá um Bakaríið á Bylgjunni á laugardagsmorgnum. Þau fara yfir málefni líðandi stunda á léttan máta og fá til sín góða gesti.

Bandaríkin hlaðvarp

Hlaðvarp fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar um bandarísk stjórnmál.

Besta sætið

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Vísis og Stöðvar 2 Sports. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

Betri blandan

Upptökur af Betri blöndunni á FM957 frá árunum 2013-2014.

Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása hóf göngu sína síðasta vor. Umsjónarmaður þáttanna er Ásgrímur Geir Logason. Hann fær til sín þjóðþekkta einstaklinga ásamt þeirra betri helming og ræðir um ástarsambandið, lífið og tilveruna.

Björgvin Halldórsson sextugur

Sérþáttur Bylgjunnar um Björgvin Halldórsson í tilefni af sextugsafmæli hans. Þorgeir Ástvaldsson ræðir við hann. Þátturinn var sendur út 2011.

Blökastið

Blökastið er hlaðvarp með Audda, Steinda og Agli úr FM95BLÖ sem er aðeins aðgengilegt áskrifendum á FM95BLO.IS. Þar fá aðdáendur útvarpsþáttarins 4 auka þætti í mánuði í formi hlaðvarps, ásamt skemmtilegu aukaefni. Strákarnir verða einnig af og til í mynd og stundum í beinni útsendingu frá hinum og þessum stöðum. Hver veit nema þeir geti loksins upplifað draum sinn og verið í beinni útsendingu frá Harrah´s hótelinu í Atlantic City. Maður má nú láta sig dreyma. 

Boltinn

Boltinn var íþróttaþáttur á X977 á árunum 2012-2013.

Boltinn lýgur ekki

Tommi Steindórs og Siggi Orri

Bragi Guðmunds

Bragi Guðmunds á virkum kvöldum á Bylgjunni

Bransakjaftæði

Bransakjaftæði fjallar um tónlistarbransann og alla hans króka og kima. Hann er hugsaður sem valdeflandi tól fyrir ungt tónlistarfólk. Bransakjaftæði er hluti af verkefninu Tónatal, sem er fyrsta alhliða upplýsingaveita tónlistariðnaðarins á Íslandi, aðgengilegt á tonatal.is.

Breakbeat.is

Upptökur af danstónlistarþættinum Breakbeat.is á X977 frá árunum 2010-2013.

Brennslan

Rikki G. og Egill Ploder sjá um morgunþáttinn á FM957.

Brestur

Brodies

Brynjar Már

Gott kvöld á Bylgjunni með Brynjari Má

Bylgjan

Bylgjan órafmögnuð

Bylgjan órafmögnuð er árleg tónleikaröð Bylgjunnar þar sem okkar helsta tónlistarfólk kemur fram og spjallar við Völu Eiríks um sögur á bakvið lögin.

Bylgjulestin

Bylgjulestin í beinni útsendingu alla laugardaga í sumar frá 12-16, á Bylgjunni. Bylgjulestin. Björt og brosandi um land allt,

Bítið

Heimir Karlsson, Lilja Katrín og Ómar Úlfur vakna eldsnemma með hlustendum Bylgjunnar alla virka morgna. Fylgstu með fréttum og taktu púlsinn á þjóðmálunum, færðinni, veðrinu og íþróttunum strax í bítið.

Daldónar

Danni Baróns

Allar helgar á X977

Depeche Mode sérþáttur

Þáttur um sögu bresku hljómsveitarinnar Depeche Mode.

DesignTalks talks

Hlaðvarp um hönnun og arkitektúr. DesignTalks talks er í umsjón Hlínar Helgu Guðlaugsdóttur, hönnuðar og stjórnanda DesignTalks ráðstefnunnar og framleitt af Studio HönnunarMars og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs.

Djúpið

Djúpið er einlægur rokkþáttur í anda X977 þar sem Sigurjón Kjartansson og Addi Tryggvason fara á dýptina í umfjöllun um tónlist.

Doctor Recommended

Læknirinn og plötusnúðurinn Doctor Victor kemur með allt það helsta í dans og klúbbatónlist, innlent og erlent. Komdu þér í gírinn fyrir helgina!

Eftirmál

Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum. Samsetning: Adelina Antal. Hlaðvarpið er framleitt af TAL.

Eftirparty

Tónlistarbransaráðgjafinn Anna Dungal fær þjóðþekkt tónlistaráhugafólk til sín og fer yfir tónlistina sem mótaði það og út frá því plata þau á almennilegt trúnó

Ein pæling

Þáttur um stjórn- og samfélagsmál þar sem rætt er hispurslaust um bæði skemmtileg og erfið mál.

Eldur og brennisteinn

Heiðar Sumarliðason og Snæbjörn Brynjarsson eru léttir á bárunni og taka á málefnum líðandi stundar, sem og fortíðar. Ekkert er þeim óviðkomandi og „hot take“ eru þeirra ær og kýr.

Elements

Danstónlistarþáttur á X977 á árunum 2012-2013.

Ellen í 40 ár

Sérþáttur Bylgjunnar um Ellen Kristjánsdóttur. Ívar Guðmundsson ræðir við Ellen um tónlistarferilinn sem spannar fjörutíu ár. Þátturinn var sendur út 2019.

Ellý Vilhjálms

Þorgeir Ástvalds ræðir við Ragga Bjarna og fleiri um Ellý Vilhjálms og tónlist hennar. Einnig er notast við viðtal sem Þorgeir átti við Ellý árið 1993. Þátturinn var fluttur á Bylgjunni 2012 en þá voru haldnir minningartónleikar um Ellý.

Erna Hrönn

Erna Hrönn, alla virka daga á Bylgjunni

Eurovísir

Hlaðvarpsþáttur á Vísi 2015 í umsjón Aðalsteins Kjartanssonar og Sunnu Karenar Sigurþórsdóttur þar sem rýnt var í Eurovision.

FM957

Ýmsar upptökur af FM957.

FM95BLÖ

Auddi Blö, Steindi Jr. og Gillz sjá um síðdegið alla föstudaga milli klukkan 16-18 á FM957.

Fjögur Sex

Upptökur úr þættinum Fjögur Sex á FM957 frá árinu 2011.

Fokk ég er með krabbamein

Spjall um allt það sem viðkemur krabbameini á mannamáli, bæði frá sjónarhorni þeirra sem greinst hafa með krabbamein, aðstandenda og annarra. Þáttastjórnandi er Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir, dagskrárgerðarkona.

Forsetinn á FM957

Ólafur Ragnar, einnig þekktur sem Forsetinn, tekur yfir FM957, bakkar inn með kaldan á kantinum og gefur bíómiða.

Fréttir

Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar flytur fréttir allan sólarhringinn.

Funkþátturinn

Funkþátturinn með Símon FKNHNDSM og Terrordisco er á X977 öll fimmtudagskvöld klukkan 23.

Fósturfjölskyldur

Fósturfjölskyldur, Hlaðvarpsþættir Félags fósturforeldra, birtist á fimmtudögum hér á Vísi og á öllum helstu efnisveitum.

Fótbolti.net

Tómas Þór og Elvar Geir fjalla um allt er tengist fótbolta á X977 á laugardögum.

Föstudagsviðtalið

Föstudagsviðtalið eru hlaðvarpsþættir sem voru á Vísi á árunum 2015-2017.

Gagnaverið hlaðvarp

Gagnaverið er hlaðvarp um tækni og ýmsa króka og kima tengd tækni.

Glymskrattinn

Rockabilly goðsögnin Smutty Smiff sér um Glymskrattann á X977. Rockabilly, ska, punk og reggae. Skelltu vaxi í hárið og hlustaðu!

Golfkastið

Golfkastið er hlaðvarpsþáttur Sigmundar Einars Mássonar og Þórðar Rafns Gissurarsonar og fjalla þeir um allt sem viðkemur golfi, hvort sem er á innlendum eða erlendum vettvangi.

Gott fólk með Guðrúnu Högna

Hlaðvarpsþáttur þar sem Guðrún Högnadóttir spjallar við reynda stjórnendur.

Grjótið

Grjótið er útvarpsþáttur í stjórn Guðjóns Smára þar sem aldrei er langt í húmorinn

Gula Spjaldið

Sportþáttur með Alberti Ingasyni og Ásgeiri Berki þar sem þekktir vinir verða tíðir gestir

Gull Bylgjan

Guðjón Smári

Guðjón Smári á FM957

Gústi B

Gústi B var útvarpsmaður á FM957

HI Beauty hlaðvarp

HI Beauty er hlaðvarp fyrir snyrtifíkla. Förðunarfræðingarnir Heiður Ósk og Ingunn Sig frá Reykjavík Makeup School fara yfir það helsta sem er að gerast í snyrtiheiminum þegar kemur að förðun, húðumhirðu, hári og fleira.

Hamingjustund þjóðarinnar

Hamingjustund þjóðarinnar með Páli Sævari

Handkastið

Handboltahlaðvarp þar sem farið er yfir Olís deild karla vikulega. Umsjónarmaður hlaðvarpsins er Arnar Daði Arnarsson.

Handvarpið

Handvarpið eru hlaðvarpsþættir um handbolta sem voru á Vísi á árunum 2015-2016.

Harmageddon

Trúið! Hlustið! Hlýðið! Frosti og Máni í Harmageddon alla virka daga á X977

Heilsuvarpið

Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ragga spjallar sjálf eða fær til sín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokkar úr þeim viskuna fyrir okkur að nýta okkur í daglegu lífi.

Helgin með Braga Guðmunds

Skemmtilegir laugardagar með Braga Guðmunds

Helgin með Hvata

Skemmtilegir sunnudagar með Hvata. Alla sunnudaga milli 12:20 og 16:00

Helgin með Ásgeiri Páli

Upptökur úr Helginni frá árunum 2015-2018.

Hemmi Gunn

Upptökur af fjölmörgum frábærum þáttum með Hemma Gunn á Bylgjunni.

Hip hop og pólitík

Kjartan Kjartansson og Þorbjörn Þórðarsson voru með hlaðvarpið Hip hop og pólitík á Vísi árið 2015.

Hreimsborgarar

Hreimsborgarar voru á dagskrá FM957 árið 2013.

Hverfið

Lóa og Gunnar Ingi standa vaktina á Útvarp 101 á fimmtudögum milli klukkan 16 og 18.

Háskaleikur

Háskaleikur er danstónlistarþáttur með Áskeli (BORG). Þátturinn er á dagskrá Útvarps 101 á föstudagskvöldum milli klukkan 20 og 22.

Hátíðarviðtöl

Lengri viðtöl við ýmsa áhugaverða einstaklinga.

Íslenski listinn

Íslenski listinn með DJ Dóru Júlíu

Ívar Guðmundsson

Ívar Guðmundsson er á Bylgjunni alla virka daga

Ívar Halldórsson

Ívar Halldórs á Bylgjunni.

Í­þrótta­fréttir á X-inu

Málefni líðandi stundar krufin, úrslit, slúður og allt sem er í gangi í íþróttaheiminum. Bara það sem fólk nennir að hlusta á samt. Umsjón: Sverrir Mar.

Justin Timberlake sérþáttur

JT Special. Sérþáttur á FM957 um Justin Timberlake.

Jákastið

Jákastið er hlaðvarp þar sem hlustendur kynnast jákvæðum og drífandi einstaklingum enn betur. Jákastið á að veita innblástur, gleði og hugrekki. Umsjón: Kristján Hafþórsson.

Jóhann Örn

Jóhanna Helga

Jóhanna Helga á FM957

Jólagleði Þorgeirs

Þorgeir Ástvalds tekur skemmtileg viðtöl við Íslendinga í öllum heimshornum. Þættirnir voru á dagskrá Bylgjunnar 2010.

Jóna Margrét

Jóna Margrét

KK sextugur

Sérþáttur Bylgjunnar um KK í tilefni af sextugsafmæli hans. Þátturinn var sendur út um jólin 2015.

Keyrslan

Keyrslan með Agli Ploder var á FM957 vorið 2020.

Klukk

Klukkutíma langt partí í boði DJ B Ruff og DJ Jay-O á Útvarp 101.

Konur í tónlist

Fjallað um konur í tónlist á Íslandi. Þátturinn er unnin af Kítón, félagi kvenna í tónlist.

Kristján & Ósk

Systkinin Kristján og Ósk voru með þætti á FM957 á árunum 2012-2014.

Kristín Ruth

Upptökur úr þætti Kristínar Ruthar á FM957.

Kronik

Kronik fjallaði um íslensku rappsenuna á hápunkti hennar árin 2016-2018 á X977.

KveldÚlfur

Ómar Úlfur stendur vaktina á X977.

Kviknar hlaðvarp

Í hlaðvarpinu Kviknar fjallar Andrea Eyland um fæðingar frá ýmsum sjónarhornum, fær gesti í hljóðverið sem deila reynslusögum og talar við sérfræðinga.

Kynlegir kvistir

Katrín og Anna Tara sáu um feminíska þáttinn Kynlega kvisti á X977 árin 2014-2015.

Kósý

Kósý með Ernu Dís voru á dagskrá FM957 árið 2010.

Laddi sjötugur

Heimir Karlsson ræðir við Ladda um tónlistina hans í tilefni af sjötugsafmælinu. Þættirnir voru fluttir á Bylgjunni um jólin 2016.

Laugardagskaffið með Atla Fannari

Atli Fannar og Haukur Viðar voru með þáttinn Laugardagskaffið á X977 á árunum 2010-2014.

Leitin að peningunum

Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.

Litli og stóri

Litli/Stóri fara yfir litlu og stóru málin alla föstudaga milli kl 9-12

Lágmenning

Finnbogi Örn tónlistarmaður, nörd og maður menningar, ræðir við allskonar fólk um framann, lífið í tónlist og ræturnar.

Léttbylgjan

Viðtöl af Léttbylgjunni.

Magasín

Brynjar Már og Erna Dís

Mannakorn 40 ára

Sérþáttur Bylgjunnar um Mannakorn í tilefni 40 ára afmælis hljómsveitarinnar. Þátturinn var fluttur á Bylgjunni árið 2014.

María Rún

María Rún er með besta rokkið á X977

Maskínan

The Hlö Machine var með Maskínuna á Bylgjunni 2014.

Með kærri kveðju

Ástarlög í bland við kveðjur frá hlustendum til ástvina sinna og fallegar sögur af ást og rómantík

Missir hlaðvarp

Í hlaðvarpsþáttunum Missir er rætt við fólk sem hefur upplifað missi á einn eða annan hátt. Viðtölin birtast á Vísi á laugardögum.

Morgunþátturinn Hljómar

Morgunhljómar til að koma þér af stað inn í daginn

Morgunþátturinn á FM957

Morgunþátturinn var á FM957 2013-2016.

Máni

Besta rokkið og Máni á X977

Múslí

Sigurbjartur Sturla og Logi Pedro eru í loftinu alla virka daga milli klukkan átta og tíu á Útvarp 101.

Músíkmaraþon

Topp tónlistin alla virka daga frá 10 til 14

Normið

Eva Mattadóttir og Sylvía Briem sameinast í hráu plebbaspjalli um mannlegheit.

Nýdönsk 25 ára

Heimildarþáttur Bylgjunnar um hljómsveitina Nýdönsk. Þeir félagar segja sögur sínar óáreittir, og fara á kostum, sögur sem aldrei hafa verið sagðar, sögur sem oft hafa verið sagðar, lög sem allir hafa heyrt en enginn veit hvernig urðu til. Þátturinn var fyrst fluttur 2012.

Orri Freyr

Ólafur Jóhann

Ólafur Jóhann alla laugardaga á FM957 á milli klukkan 16 og 18 þar sem hann fær til sín frábæra gesti í spjall, spilar topp tónlist og verður í almennu stuði

Ósk Gunnars

Party Zone

Party Zone, dansþáttur þjóðarinnar, er frumfluttur á Vísi á föstudögum en einnig aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og Mixcloud-síðu þáttarins.

Pendúllinn

Hlaðvarp um íslenska pólitík sem var á Vísi árin 2016-2017.

Plútó

Plútó er hópur plötusnúða sem stýrir Útvarp 101 á laugardögum milli klukkan 20 og 22.

Podify

Upptökur úr þáttum á vegum Podify.

Poppkastið

Farið yfir það helsta úr heimi dægurmála.

Punktur og basta

Þáttur um ítalskan fótbolta þar sem farið er yfir helstu listkúnstir hverjar umferðar í Serie A. Umsjónarmenn Punkts og basta eru þeir Árni Þórður Randversson, Þorgeir Logason og Björn Már Ólafsson.

Páll Óskar fimmtugur

Sérþáttur Bylgjunnar um Pál Óskar í tilefni af fimmtugsafmæli hans. Ívar Guðmundsson ræðir við hann. Þátturinn var sendur út 2020.

Pétur Kristjánsson - minningarþáttur

Bylgjan minnist Péturs Kristjánssonar. Þorgeir Ástvaldsson ræddi við samferðamenn hans í tónlistinni, Bjartmar Guðlaugsson og félaga hans úr hljómsveitinni Svanfríði. Íris, dóttir Péturs, sagði frá pabba sínum. Viðtal við Pétur sem Ragnar Bjarnason tók árið 1997 er einnig fléttað inní þáttinn. Þátturinn er frá 2012 þegar Pétur hefði orðið sextugur

Reykjavík síðdegis

Stærstu mál dagsins eru tekin fyrir í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni

Rikki G

Rikki G stendur vaktina á FM957.

SSSól 30 ára

Sérþáttur Bylgjunnar um hljómsveitina SSSól í tilefni af þrjátíu ára starfsafmæli hennar. Þátturinn var sendur út 2017.

Saga rokksins

35 þátta veisla þar sem Orri Freyr fer yfir sögu stærstu rokksveitanna og rokktónlistar.

Sandkorn

Kvikmyndagerðarmaðurinn Baldvin Z og bíófíkillinn Tómas Valgeirsson grandskoða sjónvarpsseríuna Svörtu sanda.

Seinni parturinn

Seinni parturinn á FM957.

Sigga Lund

Sigga Lund sér um ljúfu stemninguna á Bylgjunni.

Simmi og Jói

Upptökur úr vinsælum þætti Simma og Jóa á Bylgjunni.

Sjómannalögin í gegnum árin

Þorgeir Ástvalds fer yfir sjómannalögin í gegnum árin. Þátturinn var spilaður á Bylgjunni 2012.

Skoðanabræður

Snæbjörn talar við fólk

Snæbjörn Ragnarsson úr Skálmöld, Ljótu hálfvitunum og snjallmenni á auglýsingastofunni PiparTBWA tekur viðtöl við skemmtilegt fólk.

Sonic

90s þátturinn Sonic.

Sprengisandur

Vönduð og skelegg umræða um landsmál og pólitík á Bylgjunni.

Spurningakeppni fjölmiðlanna

Björn Teitsson tekur á móti eldkláru fjölmiðlafólki í uppáhalds spurningakeppni þjóðarinnar.

Stjórnin 30 ára

Sérþáttur Bylgjunnar um hljómsveitina Stjórnina í tilefni af þrjátíu ára starfsafmæli hennar. Þátturinn var sendur út 2018.

Stjörnubíó

Heiðar Sumarliðason fær til sín gesti í spjall um allt sem tengist sjónvarpsþáttum og kvikmyndum.

Stjörnuspeki

Gunnlaugur Guðmundsson Stjörnuspekingur, Hera Gísla og Ásgeir Kolbeins stýrðu þættinum Stjörnuspeki á Bylgjunni frá 2023-2024

Stokkið í eldinn

Straumur

Straumur fer yfir allt það nýjasta í heimi tónlistar. Straumur með Óla Dóra er á dagskrá X977 á mánudagskvöldum klukkan 23.

Stuðlög Gillz

Gagnrýnendur kalla þetta "The greatest radio show af all time!" Klukkutíma stuðlagaþáttur með Agli "Gillz" Einarssyni.

Stuðmenn í 50 ár

Sérþáttur Bylgjunnar um Stuðmenn í tilefni af 50 ára afmæli sveitarinnar. Þorgeir Ástvaldsson ræðir við Jakob Frímann Magnússon. Þátturinn var sendur út 2020.

Stál og hnífur

Bubbi Morthens ræddi við fjölmarga Íslendinga í þáttunum Stál og hnífur.

Syndaselir

Veitingavinirnir Danni og Svenni fá til sín góða gesti í drykk og spjall

Sálin í 25 ár

Sérþáttur Bylgjunnar um Sálina hans Jóns míns í tilefni 25 ára afmælis hljómsveitarinnar. Þráinn Steinsson tók meðlimi sveitarinnar í spjall í Betri Stofu Bylgjunnar. Þátturinn var fluttur á Bylgjunni árið 2013.

Séra Jón

Tala saman

Lóa Björk, Jóhann Kristófer og Birna María leiða síðdegisþáttinn Tala saman alla virka daga frá fjögur til sex.

Tetriz

Old School hip hop þáttur í umsjón Benna B Ruff. Þátturinn er á dagskrá í hádeginu fyrstu tvo föstudaga hvers mánaðar á Útvarp 101.

Three Chords & The Truth

Hjónin Susan-Holmes McKagan og bassaleikari Guns N Roses og Velvet Revolver Duff McKagan verða með tónlistarþáttinn Three Chords & The Truth öll fimmtudagskvöld á X-977.

Todmobile 25 ára

Sérþáttur Bylgjunnar um Todmobile í tilefni af 25 ára afmæli hljómsveitarinnar. Þátturinn var sendur út árið 2013.

Tommi Steindórs

Tommi Steindórs - alla virka morgna á X977 frá 9-12

Traffíkin

Guðjón Smári og Jóna Margrét í beinni útsendingu alla virka daga frá klukkan 14

Tvíhöfði

Tvíhöfði

Tónleikaupptökur

Upptökur af tónleikum.

Útvarp 101

Þættir úr smiðju Útvarps 101.

Vala Eiríks

Vala Eiríks á Bylgjunni

Vala Eiríks

Valgeir Guðjónsson sextugur

Sérþáttur Bylgjunnar um Valgeir Guðjónsson í tilefni af sextugsafmæli hans. Þorgeir Ástvaldsson ræðir við hann um ferilinn. Þátturinn var sendur út 2012.

Vasadiskó

Biggi í Maus sá um tónlistarþáttinn Vasadiskó á X977.

Veislan

Gústi B, prettyboitjokko og Adam Páls voru á FM957 á fimmtudögum

Veistu hver ég var?

Siggi Hlö stjórnar einum vinsælasta útvarpsþætti landsins. Aðalsmerki þáttarins er tónlist frá níunda áratug síðustu aldar. Eitís.

Villingurinn

Soffía Hrönn sá um þungarokksþáttinn Villinginn á X977.

Villta vestrið

Villta vestrið var síðdegisþáttur á FM957 árið 2011.

X listinn

Tíu vinsælustu lög vikunnar á X977 í bland við gamalt og gott

X977

Upptökur af X977.

Yngvi Eysteins

Yngvi Eysteins var útvarpsmaður á FM957.

Þegar ég verð stór

Vaka Njálsdóttir og Vala Rún Magnúsdóttir eru þáttastjórnendur Þegar ég verð stór, sem er viðtalsþáttur við íslenskar konur.

Þorsteinn Eggertsson sjötugur

Þorgeir Ástvalds ræðir við eitt mesta textaskáld íslenskrar dægurtónlistar, Þorsteinn Eggertsson, í tilefni þess er hann varð sjötíu ára. Þorgeir ræðir við Þorstein um ferilinn og spilar marga af hans þekktustu textum. Þátturinn var fluttur á Bylgjunni 2012.

Þrjár í fötu

Sigrún, Ósk og Þórunn voru með þáttinn Þrjár í fötu á sunnudögum á FM957 árin 2016-2017.

Þungavigtin

Þungavigtin er hlaðvarpsþáttur fyrst og fremst um knattspyrnu og öllu henni tengdri.

Þunnudagskvöld

Arnar Ingi og Aron Mola breiða volga sæng yfir hlustendur með ljúfum tónum og skemmtilegum pælingum á Útvarp 101 á sunnudagskvöldum árið 2019.

Æði hlaðvarp

Patti, Binni og Bassi leyfa áheyrendum að skyggnast bak við tjöldin í Æði 2, svara spurningum áhorfenda og sulla teinu um allt sem að þú fékkst ekki að sjá í þáttunum.