Stjórnarþingmennirnir Páll Magnússon og Ólafur Þór Gunnarsson ræddu ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna og Framsóknar í Víglínunni. Þeir sögðu stjórnarsamstarfið hafa reynst afar gæfuríkt og það sæist í þeim stuðningin sem stjórnin nýtur í fylgiskönnunum. Nái flokkarnir meirihluta í kosningum ættu þeir  að mati Páls að stefna að áframhaldandi samstarfi.

„Ég held að í öllum aðalatriðum hafi þetta ríkisstjórnarsamband tekist alveg mjög vel upp. Furðuvel myndu margir segja miðað við það hvaða flokkar lögðu upp í það,“ segir Páll Magnússon.

Segja ríkisstjórnarsamstarfið hafa verið farsælt

Páll segir að málinu samkvæmt gæti hann rekið ýmislegt sem hann hafi ekki verið sammála Vinstri grænum og Framsóknarflokknum í einstaka málum en að í aðalatriðum hafi ríkisstjórnarsamstarfið gengið vonum framar.

„Við höfum náð mjög langt með þann málefnasáttmála sem við fórum af stað með. Eðlilega er ágreiningur milli flokkanna í mörgum málefnum, enda eru þeir um allt rófið í stjórnmálum. En þrátt fyrir þetta hefur þetta tekist ágætlega,“ segir Ólafur Þór.

Páll segir það liggja í hlutarins eðli að nái núverandi stjórnarflokkar meirihluta að nýju í næstu Alþingiskosningum eftir þetta „ekki hnökralausa en farsæla samstarf“ hljóti þeir að taka þann kost fyrstan að halda áfram þessu stjórnarsamstarfi.

„Ein­boðið að næðu þessir flokkar meiri­hluta að þeir haldi á­fram“